-
Þjónustuskilmálar fyrir
VR Stafræna hæfnihjóliðSíðast uppfært 7. júlí, 2022
- Tengiliður og stuðningur
- Center for Digital Dannelse
Baadehavnsgade 42K,
2450 Copenhagen SV
Denmark
https://mapus.io
info@mapus.io
+45 71 74 38 76
DPO: Anders Skov
- Center for Digital Dannelse
- Velkomin(n)
- Skilmálarnir gilda um notkun þína á þjónustunni. Því vinsamlegast lestu skilmálana vandlega.
- Center for Digital Dannelse (hér eftir „Við“, „okkar“, „okkur“) hefur útbúið þessa þjónustuskilmála (hér eftir „skilmálar“) svo að þú vitir hvaða reglur gilda um samband okkar við þig. Skilmálarnir gilda um notkun þína á þjónustu okkar VR Stafræna hæfnihjólið (hér eftir „þjónustan“) og mynda lagalega bindandi samning milli þín og okkar.
- Til þess að þú getir notað þjónustuna verður þú að samþykkja skilmálana sem við birtum þér:
- Áður en þú notar þjónustuna
- Þegar við gerum teljandi breytingar á skilmálunum - Skilmálarnir gilda um notkun þína á þjónustunni og því skaltu lesa þá vandlega.
- Samþykkt skilmála
- Þú getur ekki notað þjónustuna okkar nema þú samþykkir skilmálana. Þegar þú samþykkir skilmála okkar samþykkir þú að vera bundin(n) af og hlíta þeim.
- Þú verður að hafa náð 13 ára aldri til að mega samþykkja skilmálana sjálf(ur). Ef þú ert yngri en 13 ára máttu einungis nota þjónustuna undir eftirliti foreldris eða forráðamanns, sem samþykkir að vera bundin(n) af og hlíta skilmálunum fyrir þína hönd.
- Breytingar
- Við vinnum stöðugt að því að gera þjónustu okkar betri. Þetta þýðir að hvenær sem er og án fyrirvara kunnum við að loka þjónustunni tímabundið eða breyta henni.
- Við getum hvenær sem er uppfært eða breytt skilmálum. Notendur verða látnir vita ef um miklar breytingar verða á skilmálum.
- Réttindi sem við veitum þér
- Við eigum öll réttindi, þar á meðal titil, vörumerki, höfundarrétt og hagsmuni, þar á meðal öll hugverkaréttindi á þjónustunni. Þetta felur í sér hugsanlega þekkingu og skjöl.
- Þú færð tímabundin, almenn, óyfirfæranleg og óframseljanleg réttindi til að fá aðgang að þjónustunni og til notkunar á henni.
- Þú hefur ekki heimild til bakhönnunar, til að baksmala, bakþýða eða á nokkurn hátt vinna í kringum tæknilegar takmarkanir eða senda áfram innihald þessa vefsvæðis án skriflegrar heimildar frá Center for Digital Dannelse. Einnig er þér óheimilt að breyta eða búa til afleidda vöru/vörur eða þjónustu sem byggist á þjónustunni og óheimilt er að sameina eða samþætta þjónustuna við hvern þann vélbúnað, hugbúnað eða aðra tækni sem Center for Digital Dannelse leyfir ekki. Að lokum er þér heldur ekki heimilt að nota efnið í viðskiptatilgangi. Þetta gildir um texta, myndir, hljóð og myndskeiðsefni.
- Með því að samþykkja þessa skilmála þá ábyrgist þú að þú notir ekki þjónustuna í neinum ólöglegum tilgangi.
- Réttindi sem þú veitir okkur
- Þjónusta okkar gefur þér kost á að fræðast um, kanna, meta eða prófa ýmis mælanleg svið. Við þessa notkun býðst þér að vista, senda og fá niðurstöðurnar sendar. Þú heldur að sjálfsögðu eignarrétti þínum á hugsanlegum óáþreifanlegum réttindum sem þú hefur gagnvart niðurstöðunum en þú gefur okkur heimild til að nota niðurstöðurnar sem fást af notkun þinni á þjónustunni.
- Vernd persónuupplýsinga
- Okkur er annt um friðhelgi þína. Þú getur kynnt þér hvernig unnið er með persónuupplýsingarnar þínar þegar þú notar þjónustu okkar í Persónuverndarstefna.
- Virkni og ábyrgð
- Þjónustan er veitt „eins og hún er“ og með þeirri grunnvirkni sem lýst er, án nokkurs konar ábyrgðar af nokkru tagi. Notkun þín á þjónustunni er á þína eigin ábyrgð. Því ábyrgjumst við ekki að þjónustan verði órofin eða villulaus.
- Þér er ljóst að þjónustan, líkt og allur annar hugbúnaður, kann að innihalda villur. Slíkar villur eru leiðréttar í reglulegu viðhaldi okkar á þjónustunni. Ekki er hægt að fara fram á nokkrar lagfæringar eða leggja fram réttindakröfu vegna fyrra brots á samningi.
- Í þeim tilfellum þar sem þjónustan notar upplýsingar frá þér til að birta þér ráðleggingar eru ráðleggingarnar einungis birtar sem uppástungur. Við tökum enga ábyrgð á aðgerðum sem þú grípur til í kjölfar ráðlegginga frá þjónustunni. Þetta á einnig við, án takmarkana, ef þessar aðgerðir skila ekki tilætluðum árangri.
- Takmörkun og ábyrgð
- Við erum ekki undir neinum kringumstæðum ábyrg fyrir skaðabótaábyrgð, beinu eða óbeinu tjóni - þar á meðal, en ekki takmarkað við, afleiddu efnahagstjóni, tapi á framleiðni, skorti á sparnaði, tapi á tekjum, viðskiptavild, ímynd, tapi á gögnum eða óbeinu tapi - vegna notkunar þinnar á þjónustunni. Þú tekur á þig alla ábyrgð sem tengist notkun þjónustunnar. Þannig ábyrgjumst við ekki að þjónustan verði truflun eða villulaus.
- Þér ber öllum stundum að halda okkur skaðlausum vegna hvers kyns kröfu sem þriðji aðili kann að setja fram sem afleiðing af broti þínu á höfundarréttarlögum eða almennt gegn greinum þessa samnings.
- Óviðráðanleg atvik
- Við erum ekki skaðabótaskyld gagnvart þér ef aðstæður koma upp sem seinka því eða koma í veg fyrir að við getum uppfyllt ákvæði samningsins. Undir slíkar aðstæður falla meðal annars ófyrirsjáanlegir atburðir, óeirðir, stríð, hryðjuverk, farsóttir, heimsfaraldrar, sóttkví, verkföll eða verkbönn, viðskiptabönn, lögbann yfirvalda eða hverjar aðrar óviðráðanlegar aðstæður. Ef einhverjar framantalinna aðstæðna koma upp áskiljum við okkur rétt til þess að loka tímabundið á þjónustuna eða loka á aðgang þinn að henni, án bótaskyldu.
- Gildandi lög og varnarþing
- Allan ágreining okkar á milli skal útkljá samkvæmt dönskum lögum fyrir héraðsdómi Kaupmannahafnar.
- Tengiliður og stuðningur
