-
Heildaryfirlit
Þetta er heildarlisti yfir atriði sem tengjast stafrænni hæfni. Þú getur síað tilvísanirnar út frá hæfniþáttum og tegund með því að nota fellilistana.
Sía upplýsingar
Dæmi
Dæmi um hæfni
Dæmi: GagnageymslaHugar að öryggi, aðgengileika og lagalegum kröfum þegar gögn eru sett í geymslu.
Dæmi: GagnageymslaÞekkir kosti og galla þess að geyma gögn í skýinu, á hörðum diski eða í færanlegu tæki.
Dæmi: GagnageymslaGetur breytt sniði mynda og vistað þær á hentugasta sniðinu hverju sinni (t.d. .jpg, .png eða .raw).
Dæmi: GagnageymslaSkilur reglurnar um hvar og hvernig skuli geyma efni.
Dæmi: UpplýsingaleitLeitar til dæmis án umhugsunar fyrst á netinu þegar finna þarf upplýsingar eins og leiðarkerfi strætisvagna, staðreyndir, afgreiðslutíma og fréttir.
Dæmi: UpplýsingaleitGetur flokkað leitarniðurstöður eftir dagsetningu, höfundi, miðli eða skráarsniði með notkun sía.
Dæmi: UpplýsingaleitErt fljót(ur) að rannsaka flókið efni og finna staðreyndir, fræðsluefni eða sérfræðinga með leit í viðeigandi leitarvélum.
Dæmi: Gagnrýnið matKannar til dæmis alltaf trúverðugleika höfundarins og vefsvæðisins og hvenær upplýsingarnar birtust.
Dæmi: Gagnrýnið matEr kunnugt um hvernig leitarþjarkar yfirfara og skrá efni sem til er á netinu og hvernig niðurstöðurnar eru svo birtar notandanum.
Dæmi: Gagnrýnið matHugar ávallt vel að því hvort upplýsingar eins og áhugamál, prófílmynd, hjúskaparstaða og trúarskoðanir geti haft áhrif á horfur á vinnumarkaði síðar meir.
Dæmi: SjálfsafgreiðslaLeitar alltaf fyrst að sjálfsafgreiðslulausn á netinu (t.d. vegna tímapantana eða miðakaupa) áður en hringt er eða mætt er á staðinn
Dæmi: SjálfsafgreiðslaGetur til dæmis notað netið til að tilkynna um breytt lögheimili, sótt um frístundakort, pantað tíma hjá lækni eða greitt reikninga í netbanka.
Dæmi: SjálfsafgreiðslaErt örugg(ur) við notkun greiðslukortaupplýsinga, rafrænna skilríkja, kennitölu o.s.frv.
Dæmi: Virk þátttakaSkrifar til dæmis oft ummæli við fréttir á vefmiðlum, heldur úti bloggsíðu, deilir efni á samfélagsmiðlum eða tekur virkan þátt á starfstengdum samræðuvettvangi.
Dæmi: Virk þátttakaÞekkir til dæmis ýmiss konar samskiptavettvang til persónulegra og faglegra nota, svo sem Meetup, Pinterest, Flickr, LinkedIn, Blogster, YouTube og Twitter.
Dæmi: Virk þátttakaSkilur hvernig nota má internetið til góðs sem og ills, til þess að rökræða og deila pólitískum boðskap, svo sem með netherferðum.
Dæmi: SamvinnaÞekkir grundvallarreglur stafrænnar samvinnu og kannt að skipuleggja verkefni í hóp.
Dæmi: SamvinnaGetur til dæmis skrifað tölvupóst fumlaust, komið meiningu þinni skýrt á framfæri og forðast misskilning.
Dæmi: SamvinnaGetur til dæmis vel komið skoðun eða tilfinningu til skila til viðtakandans með því að gefa texta ákveðinn blæ.
Dæmi: Félagsleg vitundGetur til dæmis beitt mismunandi orðnotkun, slangri, myndum, litum eða margmiðlunartækni eftir því hver viðtakandinn er.
Dæmi: Félagsleg vitundGetur sett þig í spor annarra og skilið tilfinningar þeirra, hugsanir og viðhorf (jafnvel án þess að hafa hitt viðkomandi augliti til auglitis).
Dæmi: Félagsleg vitundHefur ákveðið fyrirfram hvernig bregðast skuli við særandi ummælum eða ókurteisum tölvupósti.
Dæmi: Val á samskiptamátaSkilur til dæmis kosti og ókosti mismunandi samskiptamáta, svo sem síma, tölvupósts, spjallskilaboða, myndfunda og SMS-skilaboða.
Dæmi: Val á samskiptamátaÍ vissum tilfellum segir mynd meira en þúsund orð, en stundum er betra að notast t.d. við stutt myndskeið.
Dæmi: Val á samskiptamátaKannar alltaf þær reglur sem samþykkja skal áður en nota má þjónusta á netinu.
Dæmi: Framkvæmd og gagnavinnslaGetur til dæmis breytt myndum, myndskeiðum, texta eða hljóði í forritum á borð við Photoshop, Final Cut eða Word.
Dæmi: Framkvæmd og gagnavinnslaFinnst til dæmis gaman að búa til efni sem er alfarið stafrænt, til dæmis mynd, tónlist eða myndskeið.
Dæmi: Framkvæmd og gagnavinnslaGetur breytt sniði mynda og vistað þær á hentugasta sniðinu hverju sinni (t.d. .jpg, .png eða .raw).
Dæmi: Upplýsingaöflun um tækninýjungarFylgist til dæmis með nýjum snjallsímum sem koma á markaðinn og hefur gaman af því að tala um nýjustu tækin og tæknilegar nýjungar.
Dæmi: Upplýsingaöflun um tækninýjungarÁtt auðvelt með að skipta yfir í ný tæki og hugbúnað, án þess að það valdi ergelsi eða streitu.
Dæmi: Upplýsingaöflun um tækninýjungarLærir til dæmis hratt að nota ný tæki, þjónustu á netinu eða nýjan hugbúnað.
Dæmi: SjálfvirknivæðingSkilur til dæmis hvenær hentar að skipta út skyldubundnu námskeiði fyrir sveigjanlegri rafræna þjálfun, og hvenær betra er að halda fjarfund í stað vikulegra funda.
Dæmi: SjálfvirknivæðingÞekkir til ferlisins hvernig hugmynd er þróuð í gegnum forritun og verður að fullbúnum hugbúnaði.
Dæmi: SjálfvirknivæðingKannt að nota gagnagrunnsforrit á borð við Excel, MySQL, Microsoft Access eða Oracle til að geyma gögn eins og við á.
Dæmi: StillingarSkilur samhengið milli mismunandi hluta á borð við örgjörva, minni, móðurborð, snúrur (s.s. HDMI) og netbeina.
Dæmi: StillingarErt óhrædd(ur) við að prófa hluti án þess að vita nákvæmlega hvað gerist (svo sem þegar prentari prentar ekki).
Dæmi: StillingarLætur ekki truflast af pirringi eða gefst upp þegar tæknileg vandamál koma upp.
Dæmi: Lagaleg atriðiÞekkir til laga um markaðssetningu, rógburð, ruslefni, höfundarrétt, kúgun, mismunun, eignarhald myndefnis og vafasöm viðskipti á netinu.
Dæmi: Lagaleg atriðiAthugar til dæmis hvort leyfilegt sé að nota mynd áður en hún er nýtt í eitthvað.
Dæmi: Lagaleg atriðiVeist til dæmis hvenær hótanir, áreitni, stríðni, rógburður og launung þróast úr óæskilegri hegðun yfir í brotlega.
Dæmi: Umsjón persónuupplýsingaSkilur til dæmis hvernig gagnrýni eða hrós sem látið er falla opinberlega í garð fólks eða fyrirtækja getur haft afleiðingar.
Dæmi: Umsjón persónuupplýsingaGetur leitað að og fundið persónuupplýsingar eins og prófílmynd, ummæli sem viðkomandi hefur skrifað, heimilisfang, atvinnu, menntun o.fl.
Dæmi: Umsjón persónuupplýsingaHugar ávallt vel að því hvort persónulegar upplýsingar eins og prófílmynd, hjúskaparstaða, stjórnmálaskoðanir og trúarskoðanir geti haft áhrif á horfur á vinnumarkaði síðar meir.
Dæmi: GagnaverndHefur það til dæmis fyrir vana að nota tákn, tölur og hástafi í lykilorðum, og notar ekki nöfn á fjölskyldumeðlimum eða gæludýrum í lykilorðum.
Dæmi: GagnaverndErt með leiðir til að koma auga á þegar óprúttnir aðilar reyna að komast yfir viðkvæmar upplýsingar frá notendum, svo sem notandanafn, lykilorð eða greiðslukortaupplýsingar.
Dæmi: GagnaverndKannt til dæmis að nýta tvíþætta auðkenningu eða lykilorðsvernd á skjölum, ásamt því að tryggja að boðleiðin sé örugg við sendingu þeirra.
Dæmi: HeilsaÞekkir til dæmis rétta líkamsstöðu, skjáhæð og fótastöðu, og bestu vinnutækin fyrir heilsuna.
Dæmi: HeilsaÞekkir algengustu flýtiskipanir, svo sem að fara til baka, leita, taka skjáskot, feitletra texta, fara milli atriða og auka aðdrátt (Ctrl +).
Dæmi: HeilsaÞekkir til dæmis að höfuðverkur, þokukennd sjón eða verkir í úlnlið geta verið merki um of mikla notkun.
Dæmi: LeikniUpplýsingaleikni felst meðal annars í því að kunna að nota rafræn skilríki, finna upplýsingar fyrir tiltekið verkefni eða umbreyta skrá yfir á annað snið.
Dæmi: ÞekkingUpplýsingahæfni nær til dæmis yfir það að þekkja mismunandi leitarvélar, sjálfsafgreiðslulausnir, geymslulausnir og leiðir til að sannreyna áreiðanleika tiltekinna upplýsinga.
Dæmi: LeikniSamskiptaleikni snýst til dæmis um notkun aðferða og forrita til að leysa verkefni sem felast í samskiptum við aðra.
Dæmi: LeikniVerkleg leikni felst meðal annars í því að geta nýtt sér fjölda forrita til að búa til eða breyta stafrænu efni af ýmsu tagi.
Dæmi: ViðhorfViðhorf til upplýsinga felur til dæmis í sér virka afstöðu, greiningu og gagnrýni á þeim stafrænu upplýsingum sem unnið er með.
Dæmi: ViðhorfViðhorf til samskipta getur til dæmis falist í því hvort maður sjái ávinning og tilgang í því að eiga samskipti við aðra í gegnum stafrænan miðil, og að gæta þess að velja orð sín vel svo ekkert misskiljist.
Dæmi: ÞekkingÞekking á samskiptum felst til dæmis í því að þekka kenningar og áhrif mismunandi miðla, ásamt því að þekkja fjölda forrita til stafrænnar samvinnu.
Dæmi: ViðhorfMeð viðhorfum í verklegri hæfni er til dæmis átt við siðferðileg mál, svo sem hvernig efni er búið til og deilt.
Dæmi: ÞekkingVerkleg þekking er til dæmis þekking á nýrri tækni og hvernig hana má nýta til að gera núverandi ferli skilvirkari.
Dæmi: Tæknimiðuð stjórnunAð fylgjast með tækniþróun á eigin starfssviði
Dæmi: Tæknimiðuð stjórnunAð kunna að nýta tæknina á skilvirkan hátt
Dæmi: Tæknimiðuð stjórnunAð kunna að takmarka aðgang að tölvukerfum og tryggja öryggi þeirra
DæmiÞér finnst til dæmis gaman að tjá hugsanir þínar og skoðanir á samfélagsmiðlum
DæmiÞú íhugar til dæmis hvort það sem þú lest á netinu er sannleikanum samkvæmt
DæmiÞú getur til dæmis borið saman upplýsingar frá mismunandi stöðum til að leggja mat á áreiðanleika upplýsinganna
DæmiÞú athugar til dæmis hver stendur fyrir birtingu upplýsinga sem þú finnur á netinu og hvers vegna þær voru búnar til
DæmiÞú þekkir kosti og galla mismunandi miðla, svo sem síma, tölvupósts og samfélagsmiðla, þegar þú notar þá til samskipta við aðra
DæmiÞú ígrundar hvaða tegund efnis hentar best (myndskeið, myndir, tónlist eða glærusýning) til að kynna tiltekið efni fyrir bekknum
DæmiÞú veist til dæmis hvenær mismunandi tegundir efnis henta vel og hvenær illa
DæmiÞú getur til dæmis búið til glærusýningu fyrir kynningu með texta, myndum og myndskeiðum
DæmiÞú getur til dæmis búið til eigið blogg eða vefsíðu á netinu
DæmiÞú getur til dæmis búið til og breytt eigin myndum og myndskeiðum
DæmiÞú veist til dæmis hvenær tækni getur nýst til að gera samvinnuna þægilegri og betri (og hvenær ekki)
DæmiÞú þekkir og getur notað fjölda stafrænna verkfæra þegar vinna á verkefni í hóp
DæmiÞú átt til dæmis auðvelt með að einbeita þér að vinnu í tölvunni eða spjaldtölvunni án þess að gleyma þér í öðru
DæmiÞú átt til dæmis auðvelt með að setja þig í spor annarra og skilja tilfinningar þeirra, hugsanir og viðhorf, þegar þú talar við þá á netinu
DæmiÞú gætir til dæmis að því að viðhafa góðan samskiptastíl við aðra á netinu
DæmiÞú tekur til dæmis mið að því við hvern þú ert að tala á netinu og lagar orðalag og tón að viðmælandanum.
DæmiÞú þekkir til dæmis kosti og galla við ýmsar mismunandi skráargerðir
DæmiÞú getur til dæmis geymt efni þannig að auðvelt sé að finna það aftur
DæmiÞú getur til dæmis geymt myndir, myndskeið og skjöl í skýinu
DæmiÞú gætir til dæmis að leyfum eins og höfundarrétti og CC-leyfum þegar þú notar efni frá öðrum á netinu
DæmiÞú fylgist yfirleitt vel með því hverju þú ert að segja „já“ við þegar þú samþykkir skilmála fyrir þjónustur á netinu
DæmiÞú gerir þér til dæmis vel grein fyrir því hverju má deila um annað fólk, og hverju ekki
DæmiÞú getur til dæmis notað leitarsíur til að leita á markvissari hátt
DæmiÞú skilur til dæmis hvernig leitarvélar safna saman upplýsingum af netinu og sýna þér viðeigandi niðurstöður
DæmiÞú getur til dæmis leitað eftir orðasamböndum en ekki bara stökum orðum
DæmiÞú hugar til dæmis alltaf að því hvort efni sem þú setur á netið ætti að vera aðgengilegt öllum, með takmörkuðum aðgangi eða aðeins birt lokuðum hópi
DæmiÞú veist til dæmis um staði á netinu þar sem þú getur sett inn texta, myndskeið eða myndir endurgjaldslaust
DæmiÞú þekkir til dæmis ýmsar mismunandi leiðir til þess að fá sem flesta til að sjá og taka eftir efni sem þú deilir á netinu
DæmiÞú hefur til dæmis tekið afstöðu til þess hvaða myndir og upplýsingar eru þess eðlis að þú vilt ekki að þær séu á netinu
DæmiÞú virðir mörk annarra, til dæmis með því að fjarlægja efni sem þú hefur sett á netið, ef um það er beðið
DæmiÞú veltir til dæmis fyrir þér afleiðingum þess að deila persónulegum upplýsingum á netinu
DæmiÞú getur til dæmis komið auga á skilaboð eða tölvupóst þar sem sendandinn þykist vera einhver annar en hann er
DæmiÞú ert til dæmis með góðar aðferðir til að búa til og muna (eða geyma) lykilorð
DæmiÞú veist til dæmis hvernig þú átt að bregðast við ef brotist er inn á reikninginn þinn, viðkvæmum myndum af þér er deilt eða eitthvað annað virkilega óþægilegt hendir
DæmiDæmiDæmiThe Digital Competency Wheel (English version)
Targeted the general citizen in a digitized society.
The model is theoretically based on a major EU research project DIGCOMP, which followed the European Parliament's inclusion of digital competence, as one of the eight core competences for lifelong learning.
Free and available at https://digital-competence.eu
Frekari upplýsingarDæmiDæmiDæmiÞú þekkir til dæmis marga mismunandi samfélagsmiðla og tengslanet þar sem hægt er að spjalla, skiptast á skoðunum og efni um allt milli himins og jarðar
DæmiÞú getur til dæmis sett upp prófíla á mismunandi samfélagsmiðlum sem hjálpa þér að ná því sem þú vilt fá út úr þessum miðlum
Ávinningur
Ávinningurinn af því að búa yfir mikilli hæfni
Ávinningur: Tæknimiðuð stjórnunEinstaklingar verða færari um að setja af stað og sjá ávinninginn í stafrænni tæknivæðingu
Ávinningur: GagnageymslaÞað sparar tíma og dregur úr gremju þegar regla er á upplýsingum og auðvelt að fletta þeim upp
Ávinningur: GagnageymslaSamræmi og samhæfi er tryggt þvert á kerfi með því að gæta þess frá upphafi að geyma gögn á réttu sniði og með réttum lýsigögnum.
Ávinningur: GagnageymslaDregur úr hættu á að glata verðmætum gögnum.
Ávinningur: GagnageymslaAuðveldara verður að miðla þekkingu til samstarfsfólks með því að geyma gögn þar sem viðeigandi starfsfólk hefur greiðan aðgang að þeim.
Ávinningur: GagnageymslaAuðveldara er að umbreyta og deila gögnum með utanaðkomandi aðilum ef þau eru frá upphafi á réttu skráarsniði eða opnu (ekki einkaleyfisvörðu) sniði.
Ávinningur: GagnageymslaAukinn sveigjanleiki myndast með því að hafa gögnin á sniði sem er aðgengilegt í mismunandi kerfum, svo sem í spjaldtölvum, snjallsímum og tölvum.
Ávinningur: UpplýsingaleitEinstaklingar verða betri, fljótari og sjálfstæðari í því að leita uppi réttar upplýsingar, finna góðar lausnir og traustar staðreyndir o.s.frv.
Ávinningur: UpplýsingaleitEinstaklingar verða betri í því að leita á réttum stöðum (í stað þess að nota alltaf Google).
Ávinningur: UpplýsingaleitSkjótari og nákvæmari yfirsýn yfir tiltekið efni og og auðveldara verður að draga fram mikilvægustu upplýsingarnar.
Ávinningur: UpplýsingaleitBetri stýring sem stuðlar að auknum heimsóknum á vefsvæði ef einstaklingar skilja hvernig leitarforrit virka og hvernig hægt er að bæta það.
Ávinningur: UpplýsingaleitEinstaklingar verða betri í að finna efni og gögn í eigin kerfum.
Ávinningur: UpplýsingaleitAukin hæfni nýtist við leit og notkun lausna sem til staðar eru, í stað þess að búa þær til frá grunni (meiri tími gefst í aðalstarfsemi fyrirtækisins).
Ávinningur: Gagnrýnið matStuðlað er að auknum samanburði og tekið er mið af gagnlegum upplýsingum frá fleiri stöðum áður en ákvarðanir eru teknar.
Ávinningur: Gagnrýnið matKomist verður hjá því að byggja ákvarðanir á röngum upplýsingum.
Ávinningur: Gagnrýnið matRéttara mat er lagt á áreiðanleika heimildar, samhengi hennar og gildi upplýsinganna.
Ávinningur: Gagnrýnið matBetri skilningur næst meðal starfsmanna ef vitneskja er um hvernig samfélagsmiðlar og internetið hafa áhrif á fyrirtækið/stofnunina.
Ávinningur: Gagnrýnið matDregur úr líkum á að verða fyrir skaðlegum áhrifum vefveiða, falskra auglýsinga eða sýktra vefsvæða.
Ávinningur: Gagnrýnið matGagnrýnna mat er lagt á leitarniðurstöður til dæmis þegar niðurstöður eru byggðar á því sem smellt hefur verið á áður, , vafrakökum og notendareikningum.
Ávinningur: SjálfsafgreiðslaMarkvissari innleiðing og boð sjálfsafgreiðslulausna til viðskiptavina, þátttakenda eða borgara.
Ávinningur: SjálfsafgreiðslaTímasparnaður vinnstmeð því að nýta sjálfsafgreiðslulausnir á netinu í stað þess að bíða í röð í símanum eða bíða eftir bréfi með póstinum.
Ávinningur: SjálfsafgreiðslaVerða fyrirmynd í tæknivæðingu með því að fara fyrir með góðu fordæmi og nota sjálf stafræn verkfæri.
Ávinningur: SjálfsafgreiðslaEinfalda skipulag með því að fá svör við fyrirspurnum um leið.
Ávinningur: SjálfsafgreiðslaAuðveldara verður aðskilja gremju viðskiptavina, borgara eða þátttakenda og auðveldara að leiðbeina þeim í rétta átt.
Ávinningur: Virk þátttakaÞað greiðir leið að nýjum tengslanetum og auðveldar leit fjölmiðla þegar fyrirtæki/stofnanir eru sýnileg almenningi.
Ávinningur: Virk þátttakaAuðveldara verður að bregðast við gagnrýni frá borgurum, viðskiptavinum eða þátttakendum á uppbyggilegan hátt með því að ræða málin.
Ávinningur: Virk þátttakaAukin athygli er vakin á þjónustu og sérfræðiþekkingu og hvernigvið vinnum vinnu okkar.
Ávinningur: Virk þátttakaMiðlun þekkingar getur orðið betri milli starfsmanna, til dæmis með wiki-síðu þar sem vandamálum og lausnum við þeim er deilt milli starfsmanna.
Ávinningur: Virk þátttakaSkjótari aðgangur að nýrri þekkingu og góðum ráðum.
Ávinningur: Virk þátttakaÞekking á vel útbreiddri tækni er til staðar og vitað er hvaða stafrænu miðla mismunandi samfélagshópar nota.
Ávinningur: SamvinnaVið getum stuðlað að betri samvinnu og samskiptum við samstarfsfélaga, atvinnulífið, notendur og borgara, líka í öðrum löndum.
Ávinningur: SamvinnaTiðni vandamála, misskilnings og vantrausts milli starfsmanna sem upp kann að koma í stafrænum samskiptum dregst saman.
Ávinningur: SamvinnaStörfin verða sveigjanlegri og færanlegri.
Ávinningur: SamvinnaHver og einn getur aukið eigin hæfni við að miðla og leita þekkingar þegar það hentar hverjum og einum.
Ávinningur: SamvinnaFerðalögum vegna funda fækkar.
Ávinningur: SamvinnaStuðlað er að umhverfisvænni rekstri með því að spara pappír og draga úr ferðalögum.
Ávinningur: Félagsleg vitundStuðlað er að góðri vinnustaðarmenningu, til dæmis með því að efla félagslífið, bæta líðan starfsmanna og draga úr árekstrum á milli þeirra.
Ávinningur: Félagsleg vitundSamskipti og samvinna við aðra í gegnum stafrænar boðleiðir verður betri.
Ávinningur: Félagsleg vitund1Unnið er að siðferðislegum starfsháttum í stafrænum samskiptum.
Ávinningur: Félagsleg vitundHættan á að lenda í fjölmiðlafári fer minnkandi og auðveldara verður að bregðast við slíku ef til kemur.
Ávinningur: Félagsleg vitundÞegar einstaklingar huga að eigin viðmóti og því hvernig fólk talar saman smitar það líka út frá sér og stuðlar að bættri ímynd fyrirtækisins/stofnunarinnar.
Ávinningur: Félagsleg vitundGetur stuðlað að jákvæðari, uppbyggilegri og skilvirkari umræðum við samstarfsfólk, borgara eða viðskiptavini.
Ávinningur: Val á samskiptamátaHentugustu stafrænu verkfærin verða valin fyrir það verkefni sem vinna skal.
Ávinningur: Val á samskiptamátaMagn tölvupósts minnkar innanhúss.
Ávinningur: Val á samskiptamátaDregur úr þeim misskilningi og vantrausti sem oft getur komið upp í skriflegum samskiptum.
Ávinningur: Val á samskiptamátaÞekkingu verður betur miðlað þegar starfsfólk er samtaka í notkun stafrænna miðla.
Ávinningur: Val á samskiptamátaSamhæfni er betur tryggð fram í tímann með því að velja miðla sem bjóða upp á opin gögn.
Ávinningur: Val á samskiptamátaÞjónustuaðili er frekar valinn út frá tæknilegum lausnum í stað þess að vera háður einum þjónustuaðila með takmarkaðar lausnir.
Ávinningur: Framkvæmd og gagnavinnslaAuðveldara verður að miðla þekkingu og stuðlað er að skilvirkari samskiptum ef upplýsingar eru settar fram á fjölbreyttan hátt, öðruvísi en bara í texta.
Ávinningur: Framkvæmd og gagnavinnslaFjölbreytni í framsetningu efnis er nýtt til að fanga athygli hverju sinni.
Ávinningur: Framkvæmd og gagnavinnslaGetur komið skriflegum leiðbeiningum, fræðsluefni eða greinum yfir á myndrænt snið, t.d sem kynningarmyndskeið eða annað rafrænt fræðsluefni.
Ávinningur: Framkvæmd og gagnavinnslaAuðveldara verður að vega og meta ný kerfi til að sjá hvort/hvernig þau henta þegar einstaklingar er óhræddir við að læra á og eða prófa nýja miðla, þjónustu eða forrit.
Ávinningur: Framkvæmd og gagnavinnslaSjá tækifæri í því að nýta hæfileika starfskrafta innanhúss og geta þannig dregið úr kaupum á þjónustu utanaðkomandi aðila þegar búa á til grafískt efni.
Ávinningur: Framkvæmd og gagnavinnslaEinstaklingur getur frekar tjáð sig nákvæmlega eins og hann kýs og þarf ekki að láta aðra túlka það sem hann vill segja.
Ávinningur: Upplýsingaöflun um tækninýjungarAuðveldara verður að sigta úr þau stafrænu verkfæri sem henta best.
Ávinningur: Upplýsingaöflun um tækninýjungarAuðveldaraverður að taka frumkvæði í því að tæknivæða eigið fagsvið.
Ávinningur: Upplýsingaöflun um tækninýjungarTæknin verður eðlilegur hluti af daglegum störfum.
Ávinningur: Upplýsingaöflun um tækninýjungarÞekking eykst á nýrri tækni sem eykur skilvirkni, dregur úr kostnaði eða léttir dagleg störf.
Ávinningur: Upplýsingaöflun um tækninýjungarAukin greiningarhæfni á því hvaða tækniframfarir geta haft mikla þýðingu fyrir fyrirtækið/stofnunina.
Ávinningur: Upplýsingaöflun um tækninýjungarLitið er á tæknina sem leið til að betrumbæta núverandi lausnir, en ekki sem hindrun.
Ávinningur: Upplýsingaöflun um tækninýjungarJákvætt en raunsætt hugarfar til þeirra kosta og galla sem fylgja stafrænni tæknivæðingu.
Ávinningur: SjálfvirknivæðingBetri og raunsærri hugmyndir um hvaða hversdagslegu verk er hægt að tækni- og sjálfvirknivæða.
Ávinningur: SjálfvirknivæðingSamskipti við tölvudeildina verða skilvirkari. Auðveldara að lýsa óskum, vandamálum og villum sem upp koma þegar einstaklingur kann réttu hugtökin.
Ávinningur: SjálfvirknivæðingBetri skilningur á tímaramma (og kostnaði) sem þarf fyrir þróun nýrra kerfa.
Ávinningur: SjálfvirknivæðingAuðveldara verður að sjá fyrir og forðast vandamál og spurningar í þróunarferlinu, t.d. frá verktökum eða notendum.
Ávinningur: SjálfvirknivæðingAuðveldara verður að skilja hvaða tæknilegu breytingar eru smávægilegar og hverjar krefjast mikillar vinnu og fjármuna.
Ávinningur: SjálfvirknivæðingAukin færni við að greina stöðuna í samningaviðræðum við verktaka, svo engin blekking eigi sér stað.
Ávinningur: StillingarStarfsmenn verða færari við að leysa sjálfir tæknileg vandamál, eins og að tengja hátalara, skjávarpa og tölvu með réttum snúrum. Það getur dregið úr álagi á tölvudeildina.
Ávinningur: StillingarKostir sem bjóðast í lausnum sem notaðar eru innanhús verða frekar fullnýttir, svo sem með snjalltöflum eða spjaldtölvum.
Ávinningur: StillingarStuðst er við stafræn tæki þegar óskum, vandamálum og villum er lýst svo samskipti við tölvudeildina verði þjálli og gangi hraðar fyrir sig.
Ávinningur: StillingarEinstaklingar þekkja möguleikana sem í boði eru og geta sett stafrænt umhverfi sitt upp eins og þeir vilja, þannig að þeim líði vel og nái að afkasta sem mestu.
Ávinningur: StillingarAuknar líkur á að einstaklingar geti sjálfir greint vandamál sem upp koma, leitað lausna og innleitt þær.
Ávinningur: StillingarSéð verður til þess að öryggisafritun, útgáfustjórnun og skráning ferla sé sjálfvirknivædd.
Ávinningur: Lagaleg atriðiDregur úr hættunni á að lög verði brotin óafvitandi.
Ávinningur: Lagaleg atriðiÞekking á stafrænum eignarrétti og verklagi, t.d. hvernig bregðast skuli við ef kunnugt verður um notkun á efni án leyfis. (t.d. myndir okkar eða greinar).
Ávinningur: Lagaleg atriðiLjóst er hvenær slíkt er kært til lögreglu.
Ávinningur: Lagaleg atriðiEinstaklingar öðlast meira traust til þekkingarmiðlunar, viðskipta og sjálfsafgreiðslu á netinu þegar réttindi eru kunn.
Ávinningur: Lagaleg atriðiAukin þekking á því hvernig leyfilegt er að nota gögnin sem boðið er upp á í stafrænni þjónustu.
Ávinningur: Lagaleg atriðiEinstaklingar geta fundið og greint efni á netinu sem má nota endurgjaldslaust.
Ávinningur: Lagaleg atriðiUnnið er með, þróað og þekkingu deilt undir mismunandi leyfum, svo sem með Creative Commons, höfundarréttarvörðum hugbúnaði eða hugbúnaði í almannaeign.
Ávinningur: Umsjón persónuupplýsingaDregið er úr ótta við þekkingarmiðlun, viðskipti og sjálfsafgreiðslu á netinu með auknu öryggi í meðhöndlun persónuupplýsinga.
Ávinningur: Umsjón persónuupplýsingaDregur úr hættu á auðkennisstuldi.
Ávinningur: Umsjón persónuupplýsingaPrófun nýrrar stafrænnar tækni án ótta við áhrif hennar á stafrænt fótspor.
Ávinningur: Umsjón persónuupplýsingaAukin meðvitund um hvernig stafrænt auðkenni og hegðun á netinu hefur áhrif á vinnustaðinn.
Ávinningur: GagnaverndGetur dregið úr hættunni á að láta blekkjast af sviksamlegum tölvupósti, auglýsingum, miðlum, vefsvæðum o.s.frv.
Ávinningur: GagnaverndAukið traust borgara/viðskiptavina til fyrirtækisins/stofnunarinnar með því að sýna fram á að gagnaöryggi skiptir máli.
Ávinningur: GagnaverndGetur dregið úr hættunni á að tölvuþrjótar fái aðgang að viðkvæmum gögnum.
Ávinningur: GagnaverndEinstaklingar verða færari í að koma auga á viðkvæmar persónuuplýsingar sem krefjast sérstaks öryggis, svo sem við gagnaaðgangsfyrirspurnir.
Ávinningur: GagnaverndNýjar stafrænar aðferðir prófaðar án ótta við opinberun viðkvæmra gagna.
Ávinningur: HeilsaGetur dregið úr úr veikindadögum vegna óheilbrigðrar líkamsstöðu.
Ávinningur: HeilsaDregur úr tæknitengdri streitu.
Ávinningur: HeilsaStuðlar að bættri heilsu jafnvel þótt notuð sé tækni á sífellt fleiri sviðum.
Ávinningur: HeilsaEykur athygli á og meðvitund um áhrif tækninnar á umhverfið.
Ávinningur: HeilsaEykur líkamlega og andlega vellíðan, svo einstaklingar verði bæði ánægðari og afkasti meiru frá degi til dags.
Ávinningur: Tæknimiðuð stjórnunÝtir undir yfirsýn yfir það hvaða ferli og verkefni er hægt að gera sjálfvirkari
Ávinningur: Tæknimiðuð stjórnunStuðlar að getu og áhuga á að aðlaga verkferli svo hægt sé að tæknivæða þau
Ávinningur: Tæknimiðuð stjórnunHefur áhrif á eigin hvatningu og annarra í því að efla áfram eigin stafræna hæfni
Ávinningur: Tæknimiðuð stjórnunEinstaklingar geta lagað tæknistefnur bæði ríkis og sveitarfélaga að eigin starfssviði
Ávinningur: Tæknimiðuð stjórnunDregur úr hræðslu við að prófa nýja tækni og stuðlar að því að ný tækni er prófuð sem getur auðveldað verkferli og sparað tíma starfsfólks
Ávinningur: Tæknimiðuð stjórnunÝtir undir að sett verði raunhæf og mælanleg markmið sem ýta þróuninni í rétta átt
Ávinningur: Félagsleg vitundExercices
Ávinningur: Umsjón persónuupplýsingaJákvætt stafrænt fótspor er vísbending um jákvætt og heilbrigt vinnuumhverfi.
Æfingar
Tillögur að æfingum sem geta stuðlað að aukinni hæfni
Æfingar: GagnageymslaAflað upplýsinga um hvaða kostir og gallar fylgja mismunandi myndsniðum og vista myndir á hentugu sniði.
Æfingar: GagnageymslaBreyta Word-skjali yfir á PDF-snið.
Æfingar: GagnageymslaKynnast ferlum og reglum sem gilda um vistun gagna til að kanna hvort til staðar séu fyrirmæli um gagnavistun sem á að fylgja.
Æfingar: GagnageymslaKanna staðla um opin gögn svo tryggt verði að sem flestir hafi aðgang að efninu, óháð kerfum.
Æfingar: UpplýsingaleitLæra að nota ítarlegri leitareiginleika Google, eins og leit innan ákveðins tímabils, leit að setningum, að sleppa tilteknu orði og að raða niðurstöðunum.
Æfingar: UpplýsingaleitLeita að tilteknum einstaklingum til að vita meira um þá og geta tekið ígrundaðar ákvarðanir, til dæmis umsækjendum, fyrirlesurum eða utanaðkomandi ráðgjöfum.
Æfingar: UpplýsingaleitÉg vil finna traustar heimildir á tilteknu sviði og fylgja þeim, s.s. á Twitter, LinkedIn eða í gegnum RSS-straum frá viðeigandi miðlum.
Æfingar: UpplýsingaleitLeita eftir enskum leitarorðum þegar engar gagnlegar niðurstöður á íslensku finnast. Leitað er í langtum stærri upplýsingagrunni fyrir ensku.
Æfingar: UpplýsingaleitLeita að efni eftir margmiðlunarsniði eða skráarsniði, svo sem mynd á tilteknu skráarsniði og í uppgefinni upplausn.
Æfingar: UpplýsingaleitKanna hvernig best er að leita að upplýsingum og gögnum sem geymd eru innan fyrirtækisins/stofnunarinnar.
Æfingar: Gagnrýnið matSkoða vöruupplýsingar frá söluaðila við kaup á vöru og lesa mat sérfræðinga á vörunni ásamt umsögnum almennra kaupenda vörunnar.
Æfingar: Gagnrýnið matÉg vil finna traustar heimildir á tilteknu sviði og fylgja þeim, s.s. á Twitter, LinkedIn eða í gegnum RSS-straum frá viðeigandi miðlum.
Æfingar: Gagnrýnið matVinna æfingar sem byggja á því að skoða hvar efni birtist, hvenær það er skrifað, hvar það er gefið út og hvers vegna það var búið til. Þannig eykst geta til þess að leggja mat á áreiðanleika með skjótum hætti.
Æfingar: Gagnrýnið matHaga skrifum þannig að aðrir geti lesið þau með sömu gagnrýnu augum og litið er á efni annarra, til dæmis með því að gefa upp sendanda, dagsetningu, höfund og staðsetningu.
Æfingar: Gagnrýnið matKomast að því hver er eigandi léns, og þar með raunverulegur útgefandi upplýsinganna sem þar birtast, til dæmis með því að fletta léninu upp á ISNIC.
Æfingar: SjálfsafgreiðslaNýta allar sjálfsafgreiðslulausnir sem í boði eru til að öðlast gagnrýna sýn á eigin lausnir.
Æfingar: SjálfsafgreiðslaGera lista yfir hugsanlegar og gagnlegar sjálfsafgreiðslulausnir sem persónulegt gagn er af að nota, til dæmis ef skipta þarf um heimilislækni, kaupa strætókort, fylla út tryggingaeyðublað og margt fleira.
Æfingar: SjálfsafgreiðslaPrófa nýja sjálfsafgreiðslulausn sem sparar tíma , t.d. tímabókun hjá lækni.
Æfingar: SjálfsafgreiðslaTileinka sér meiri þolinmæði næst við notkun sjálfsafgreiðslulausna.
Æfingar: SjálfsafgreiðslaReyna að leysa vandamál við sjálfsafgeiðslu sjálf/ur áður en hringt er, t.d. með því að prófa annan vafra.
Æfingar: SjálfsafgreiðslaUppfæra vafra og stýrikerfið til að tryggja samhæfi þess og öryggi.
Æfingar: Virk þátttakaTaka þátt í stafrænu tengslaneti, starfstengdu eða persónulegu, þar sem skoðunum er deilt og þekkingu á tilteknu efni.
Æfingar: Virk þátttakaBúa til myndskeið, skrifa grein eða taka upp hlaðvarp, sem hægt er að deila á viðeigandi vettvangi.
Æfingar: Virk þátttakaBiðja góða vini og samstarfsfólk um álit á því sem deilt er. Skildi fólk efnið eins og ætlunin var? Fannst fólki það t.d. fyndið, írónískt, vel rökstutt, tilfinningaþrungið, sannfærandi eða eitthvað annað?
Æfingar: Virk þátttakaReyna að greina skopskyn, þekkingu, orðnotkun og röksemdir markhópsins og öðlast þannig aukna samkennd með þeim sem talað er við.
Æfingar: Virk þátttakaSpyrja vefsamfélagið sem tileinkað er efninu þegar þörf er á gagnrýni eða svörum.
Æfingar: Virk þátttakaTaka virkan þátt á innra neti, fylgjast vel með og skrifa ummæli til að aðrir sjái að það sem þeir segja sé meðtekið.
Æfingar: SamvinnaÞróa ásamt nánasta samstarfsfólki aðferðir við að nota tæknina til að bæta samstarf.
Æfingar: SamvinnaHitta samstarfsfólk í persónu í það minnsta tvisvar á ári.
Æfingar: SamvinnaStuðla að því að alltaf sé unnið með bestu verkfærin til stafræns samstarfs.
Æfingar: SamvinnaVinna að því að innviðir og stefnumótun í tæknimálum sé miðuð að stafrænu samstarfi, til dæmis með því að veita heimildir til að setja upp hugbúnað til myndvinnslu, uppfæra Flash eða setja upp nýjan vafra.
Æfingar: SamvinnaPrófa mismunandi samskiptaleiðir (t.d. Messenger, Skype og Google-spjall) í mismunandi tilgangi (til funda, ákvarðanatöku og umræðna).
Æfingar: SamvinnaHuga að því hvar fyrirtækið/stofnunin stendur í stafrænni hæfni áður en keypt eru ný tæki og þau innleidd.
Æfingar: Félagsleg vitundÉg vil ákveða fyrir fram (og hugsanlega skrifa hjá mér) hvernig ég kýs að bregðast við í aðstæðum þar sem þrengt er að mér, mér er ögrað eða ég er sett(ur) í óþægilegar aðstæður.
Æfingar: Félagsleg vitundÍgrunda vel hvaða samskiptamáti á við hverju sinni svo viðtakandinn átti sig sem best á því sem komið er á framfæri.
Æfingar: Félagsleg vitundLæra af samstarfsfólki með því að spyrja hvar það setur sín persónulegu mörk og hvað það gerir ef farið er yfir þau mörk.
Æfingar: Félagsleg vitundReyna að greina skopskyn, þekkingu, orðnotkun og röksemdir viðtakendanna. Þannig má öðlast samkennd með og skilning á viðmælendum.
Æfingar: Félagsleg vitundÉg vil æfa mig í því að skrifa þannig að hver sem er geti lesið skilaboðin, ekki bara viðtakandinn.
Æfingar: Félagsleg vitundVinna að því að á starfsmannafundum sé rætt um góða nethegðun og siðferðismál á stafrænum miðlum, svo allir verði sammála um hvað er boðlegt og hvað ekki.
Æfingar: Val á samskiptamátaTaka upp símann eða skipuleggja hitting ef útlit er fyrir árekstra í stafrænum samskiptum.
Æfingar: Val á samskiptamátaPrófa mismunandi samskiptaleiðir (t.d. Messenger, Skype og Google-spjall) í mismunandi tilgangi (til funda, ákvarðanatöku og umræðna).
Æfingar: Val á samskiptamátaLæra að nota mismunandi stafræn tæki (svo sem snjallsíma eða spjaldtölvu) svo úr fleiri kostum sé að velja.
Æfingar: Val á samskiptamátaTaka því með opnu hugarfari/opnum hug að ný tækni kunni að vera besta leiðin til að leysa tiltekin verkefni.
Æfingar: Val á samskiptamátaKynnast kostum og göllum á mismunandi stafrænum miðlum sem samskiptamáta, s.s. um samskipti í opnum og/eða lokuðum hópum eða milli tveggja aðila, hvort sem um er að ræða fyrir fram ákveðin samskipti eða ekki.
Æfingar: Framkvæmd og gagnavinnslaHuga að því hvaða miðill hentar best fyrir efnið sem koma skal á framfæri, og hvaða miðill setur það fram á sem áhugaverðastan hátt.
Æfingar: Framkvæmd og gagnavinnslaLæra að búa til hugarkort, línurit eða annað myndrænt efni sem getur komið skilaboðunum betur á framfæri, svo sem með því að nota Xmind, Excel eða Google-eyðublöð.
Æfingar: Framkvæmd og gagnavinnslaSækja forrit þar sem hægt er að breyta hljóði, myndum eða upptökum, t.d.. Picasa eða Movie Maker.
Æfingar: Framkvæmd og gagnavinnslaKynna sér leiðbeiningar fyrirtækis/stofnana um útlit til þess að tryggja samræmi í útliti þess efnis sem sent er frá fyrirtækinu/stofnuninni.
Æfingar: Framkvæmd og gagnavinnslaÓska eftir áliti samstarfsfólks á efni sem búið er til áður en það er gefið út.
Æfingar: Framkvæmd og gagnavinnslaKynna sér opna gagnastaðla til að tryggja að allir geti opnað efnið sem þú sendir frá þér.
Æfingar: Upplýsingaöflun um tækninýjungarVera hluti af tengslaneti þar sem skipst er á tíðindum sem ekki rata á síður stærri blaða eða tímarita, svo sem Twitter, Tumblr eða Reddit.
Æfingar: Upplýsingaöflun um tækninýjungarFylgjast með tækninni með því að lesa fréttir af tækninýjungum, svo sem í Tölvumálum, eða Computerworld.
Æfingar: Upplýsingaöflun um tækninýjungarFinna eitt nýtt forrit til að kynna sér í hverjum mánuði, t.d. Podio, Google Apps eða Prezi.
Æfingar: Upplýsingaöflun um tækninýjungarKynna sér mismunandi leiðir til fræðslu á netinu, t.d. TedTalks, YouTube eða MasterClass.com.
Æfingar: Upplýsingaöflun um tækninýjungarSkrá sig á tækniráðstefnu.
Æfingar: Upplýsingaöflun um tækninýjungarSkrá sig á RSS-straum síðna sem eru áreiðanlegar og þar sem fjallað er um tækni sem skiptir máli eða vekur áhuga.
Æfingar: SjálfvirknivæðingKomast að því hvernig dæmigert ferli við hugbúnaðarþróun gengur fyrir sig, til dæmis samkvæmt Agile-aðferðafræðinni.
Æfingar: SjálfvirknivæðingRæða við forritara um hvaða áskoranir koma oftast upp í nýjum forritunarverkefnum.
Æfingar: SjálfvirknivæðingKomast að því hvers vegna ummælakerfi á vefsíðu er lengur að hlaðast en annar texti.
Æfingar: SjálfvirknivæðingSkilja hvernig forritari skrifar kóða til að leysa tiltekið verkefni.
Æfingar: SjálfvirknivæðingBúa til einfalda vefsíðu til þess að öðlast betri skilning á því hvernig hugbúnaðarþróun gengur fyrir sig. Gott er að fylgja kennsluefni sem býður upp á slíkt.
Æfingar: SjálfvirknivæðingSetja fram hugmynd til yfirmanna í samstarfi við vinnufélaga, um hvernig hægt er að sjálfvirknivæða tiltekið ferli og spara tíma í daglegum störfum.
Æfingar: StillingarSetja upp viðbætur í vafra sem geta auðveldað vinnu, til dæmis viðbætur sem fjarlægja allar auglýsingar af vefsíðum (adblocker).
Æfingar: StillingarKomast að því hvar og hvernig hjálp fæst ef upp koma tæknileg vandamál sem ekki tekst auðveldlega að leysa.
Æfingar: StillingarÞekkja heiti á helstu kerfishlutum tölvu og hvað þeir gera, til dæmis örgjörvi, innra minni, harður diskur og HDMI.
Æfingar: StillingarTileinka sér mikla þolinmæði þegar staðið er frammi fyrir tæknilegu vandamáli og tilraun gerð til þess að leysa það.
Æfingar: StillingarKomast að því hvaða heimildir eru til staðar til að stilla eigin verkfæri, s.s. hvaða stillingar þarf fyrst að fá samþykktar hjá tölvudeildinni.
Æfingar: Lagaleg atriðiKynna sér hvernig höfundarréttur virkar, svo tryggt verði að gildandi reglum sé ávallt fylgt.
Æfingar: Lagaleg atriðiÉg ætla að lesa skilmálana sem gilda um þau kerfi sem við notum mest, svo ég viti nákvæmlega hvernig gögnin okkar eru notuð.
Æfingar: Lagaleg atriðiKynna sér hvar og hvernig geymslu á persónugreinanlegum gögnum er háttað.
Æfingar: Lagaleg atriðiKynna sér opinbert stafrænt efni fyrirtækis/stofnunar og ganga úr skugga um að eingöngu efni í eigu aðilans sé í notkun (t.d. á vefsvæði eða í bæklingum).
Æfingar: Lagaleg atriðiVita nákvæmlega hvar skilin eru milli óviðeigandi eða móðgandi ummæla og svo ummæla sem eru beinlínis brotleg.
Æfingar: Lagaleg atriðiHvernig framfylgja má lögum um höfundarrétt á netinu.
Æfingar: Umsjón persónuupplýsingaKanna hvort til staðar séu leiðbeiningar um hvernig bregðast skuli við ef starfsfólk lendir í árásum, er ögrað, strítt eða sett í óþægilegar aðstæður.
Æfingar: Umsjón persónuupplýsingaKanna friðhelgisstillingar á öllum samfélagsmiðlum þar sem þú ert notandi.
Æfingar: Umsjón persónuupplýsingaTaka afstöðu til þess hvaða persónuupplýsingar og myndir þú vilt að birtist af þér á netinu.
Æfingar: Umsjón persónuupplýsingaUpplýsa samstarfsfólk, fjölskyldu og vini um persónuleg mörk.
Æfingar: Umsjón persónuupplýsingaKanna hvaða opinberu upplýsingar eru aðgengilegar um þig, til dæmis við leit á Google eða Pipl.
Æfingar: Umsjón persónuupplýsingaÞar sem samstarfsfólk getur haft áhrif á stafræn auðkenni hvert annars er það góð hugmynd að taka upp á næsta starfsmannafundi hvernig við stuðlum að sköðun stafræns auðkennis hvert annars.
Æfingar: GagnaverndÞróa eigin reglur til að búa til ný lykilorð, sem eru örugg en þó auðvelt að muna.
Æfingar: GagnaverndGæta þess alltaf að boðleiðin sé örugg þegar sendar eru viðkvæmar upplýsingar, til dæmis með því að senda aðeins í gegnum https en ekki http.
Æfingar: GagnaverndLæra að verja viðkvæm skjöl með lykilorði þegar þau eru send með tölvupósti.
Æfingar: GagnaverndKynna sér kröfur Persónuverndar um stafræna gagnavörslu þeirra persónuupplýsinga sem þú geymir.
Æfingar: GagnaverndTaka afrit af viðeigandi gögnum og geyma þau á öruggum stað.
Æfingar: HeilsaFá upplýsingar um hvernig best er að stilla skrifborðsstólinn og skrifborðið, lýsingu, skjá, mús, lyklaborð og fleira.
Æfingar: HeilsaSkipta reglulega um vinnustellingu, til dæmis með því að standa oftar upp.
Æfingar: HeilsaKynna sér hvernig hægt er að gera vinnustöðvarnar á skrifstofunni sem bestar fyrir heilsuna, með tilliti til fjárhags og þess pláss sem til staðar er.
Æfingar: HeilsaMinnka músarnotkun með því að læra og tileinka sér notkun algengustu flýtilykla.
Æfingar: HeilsaKomast að því hvernig hægt er að tileinka sér heilbrigða og hófsama tækjanotkun.
Æfingar: HeilsaTaka afstöðu til þess hvernig koma megi á heilbrigðri netmenningu innan fyrirtækisins/stofnunarinnar.
Heiti
